16.12.2024
Nú stefnum við hraðbyri inn í nýtt ár og ADHD samtökin halda áfram að bjóða upp á fjölbreytt úrval af námskeiðum á nýju ári. Alls verða níu námskeið fyrri hluta ársins 2025 og mögulega bætast við fleiri. Þau námskeið sem eru nú í boði hafa öll verið kennd áður og hlotið mikið lof þátttakenda. Gott úrval er bæði af námskeiðum í staðkennslu og í fjarkennslu, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi - hvar sem er á landinu.
Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum. Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér - ganga í ADHD samtökin.
28.11.2024
Stuðningur og fræðsla sem þú tekur á þínum tíma.
Netnámskeiðið Kærleikur í kaos er raunverulegt úrræði sem styður við foreldra til að bæta samskipti, fjölskyldumynstur og líðan.
Foreldrar, aðstandendur og aðrir sem koma að börnum með ADHD geta nýtt þetta námskeið.
25.11.2024
ADHD samtökin standa fyrir fræðslufundum mánaðarlega þar sem boðið er upp á fræðslu um ýmislegt tengt ADHD ásamt reynslusögum.
Fundirnir hafa verið vel sóttir þetta haustið og áhuginn á þeim fer vaxandi.
Upptaka af fundinum er aðgengileg í viku til tvær og því auðvelt að taka fræðsluna á eigin hraða, endurtaka eða glósa.
21.11.2024
Þegar margir boltar eru á lofti og álagið eykst þurfum við stundum að stoppa og fækka boltunum til að geta einbeitt okkur að náminu.
13.11.2024
Íslensk erfðagreining rannsakar nú erfðir sköpunargáfu og tengsl sköpunargáfu við ofureinbeitingu og taugaþroskaraskanir svo sem ADHD. Öll eldri en 18 ára geta tekið þátt, óháð því hvort þau telji sig skapandi eða ekki.
07.11.2024
ADHD samtökin ýta nú úr vör foreldrafærninámskeiðinu Kærleikur í kaos, sem ætlað er foreldrum barna með ADHD. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra opnaði námskeiðið með formlegum hætti og er það nú öllum aðgengilegt á vef ADHD samtakanna.
07.11.2024
Rútína og lyfin verða að vinna saman til að ég virki sem best sagði Óli Stefán þegar hann deildi reynslu sinni með okkur á fundi í gærkvöld. Þar fór hann yfir sitt líf og hvernig hann sér í dag ýmis einkenni ADHD sem höfðu áhrif á hann hvað varðar sjálfsmynd, kvíða og þróun alkólhólisma. Óli Stefán var einlægur og margir tengdu sterkt við hans lífsreynslu og fóru út með góð ráð af fundinum. Upptaka af fundinum er aðgengileg fyrir félagsfólk inni á Facebook í hópnum ADHD í beinni. Ef þú misstir af þessu hvetjum við þig til að gefa þér tíma og hlusta.
31.10.2024
Valdís Hrönn verður með örfyrirlestur þar sem hún kynnir grunnatriði sem snúa að ADHD og fjármálum 4. nóvember sem er opinn fyrir alla.
Hún verður svo með vefnámskeið á vegum ADHD samtakanna 12. og 19. nóvember um ADHD og fjármál þar sem hún fer betur í þá þætti sem hún kynnir stuttlega á opna fyrirlestrinum.