23.12.2022
ADHD samtökin óska félagsfólki og landsmönnum nær og fjær gæfuríkra jóla og farsæls komandi árs.
Þökkum fyrir stuðninginn og samstarfið á árinu.
09.12.2022
Síðastliðinn október, sem er ADHD vitundarmánuður á alþjóðavísu, héldu ADHD samtökin árlegt málþing sitt og að þessu sinni var umfjöllunarefnið biðlistar og sá gríðarlegi samfélagslegi kostnaður sem þeim fylgja. Nú í lok árs 2022 eru hátt í 900 börn sem bíða eftir greiningu og yfir 1.200 fullorðnir sem gerir það að verkum að biðtíminn getur orðið allt upp í tvö til þrjú ár.
Mörg gríðarlega áhugaverð erindi voru á málþinginu og hér má finna samantekt á þeim.
Ávarp - Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=218
Setning málþings - Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=539
ADHD er ekki til - Haraldur Erlendsson geðlæknir https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=1503
Viljum við betra líf? Um verndandi áhrif greininga, meðferðar og lyfja vegna ADHD. Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=3284
Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna - Elvar Daníelsson, yfirlæknir https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=7460
Reynslusaga - Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, alþingiskona https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=9364
09.12.2022
ADHD samtökin og Rafíþróttadeild Fylkis hafa tekið höndum saman og standa fyrir stuttu kynningarnámskeiði í Rafíþróttum fyrir stelpur og stráka með ADHD á aldrinum 12-17 ára.
Æfingatímabilið er frá 9. janúar til 2. febrúar, átta skipti alls. Æfingar fara fram tvisvar sinnum í viku og eru æfingarnar í 90 mínútur í senn. Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkendur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið.
Fylkir sér fyrir öllum æfingatækjum, leikjum og aðgöngum en þátttakendum er velkomið að spila aðra leiki eða skrá sig inn á sína aðganga. Hámark eru 10 í hverjum æfingahóp. Tveir hópar verða í boði fyrir stráka og tveir fyrir stelpur. Námskeið strákanna fara fram á mánudögum og miðvikudögum milli 16:30 og 18:00 (hópur 1) og 18:00 og 19:30 (hópur 2). Námskeið stelpnanna fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum milli 16:30 og 18:00 (hópur 1) og 18:00 og 19:30 (hópur 2).
Námskeiðin fara fram í rafíþrótta aðstöðu Fylkis, Norðlingabraut 12. Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt fyrir því að iðkandinn spili þann leik sem hann hefur verið skráð á æfingar fyrir.
Hér er að finna hlekki á hvern og einn hóp
Hópur 1 Stelpur: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-stelpur-med-adhd-12-17-ara-hopur-1
Hópur 2 Stelpur: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-stelpur-med-adhd-12-17-ara-hopur-2
Hópur 1 Strákar: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-straka-med-adhd-12-17-ara-hopur-1
Hópur 2 Strákar: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-straka-med-adhd-12-17-ara-hopur-2
09.12.2022
Fjórtándi var Utangáttaþefur,
vappandi um túnin.
Þegar hann kom til byggða,
var öll hátíðin búin.
Ef þú ert á síðustu stundu og að reyna að halda allt of mörgum boltum á lofti er hægt að finna allt sem ADHD einstaklinginn í lífi þínu vantar í vefverslun ADHD samtakanna https://www.adhd.is/is/vefverslun
09.12.2022
Á þriðjudaginn síðastliðinn fengu samtökin boð í móttöku til að veita viðtöku styrk frá Miðstöðinni, frá þeim hjónum Marinó Sigursteinssyni og Marý Kolbeinsdóttur. Miðstöðin er fjölskyldufyrirtæki og hefur alltaf lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og veitingu styrkja til góðra málefna í samfélaginu. Við erum djúpt snortin af þeim ríkulega styrk og trausti sem samtökunum er sýnt.
07.12.2022
Vornámskeið ADHD samtakanna – skráning hafin!
Nú stefnum við hraðbyri inn í nýtt ár og samtökin ætla að hefja árið með trompi. Níu námskeið staðfest á fyrri hluta ársins og enn getur aukist við framboðið. Af þessum níu eru fimm ný af nálinni en fjögur þeirra hafa verið í boði til langs tíma og hlotið mikið lof meðal þátttakenda. Gott framboð er af námskeiðum kenndum á staðnum, sum í fjarkennslu sem hentar vel þátttakendum víðsvegar á landinu.
Nýju námskeiðin okkar eru eftirfarandi: Rafíþróttanámskeið fyrir stelpur og stráka á aldrinum 12 – 17 ára sem unnið er í samstarfi við Rafíþróttadeild Fylkis. Understanding ADHD sem fyrsta námskeiðið um ADHD á ensku á Íslandi og einnig er boðið upp á þrjú ný námskeið sem leggja sérstaka áherslu á skólasamfélagið en þau nefnast; Leikskólinn og ADHD, Grunnskólinn og ADHD og Skólaumhverfið og ADHD. Námskeiðin eru sérhönnuð og ætluð kennurum, leiðbeinendum og öðru starfsfólki skóla sem vinnur með börnum með ADHD.
Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur fyrstur fær.
Frekari upplýsingar um námskeiðin eru að finna hér: