13.03.2024
Í lok síðasta mánaðar kom út glæný bók sem varpar ljósi á ADHD eins og það kemur fram á fullorðinsárum. Það er farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferlið eins og það er hér á landi, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því að vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til að bæta skipulag, einbeitingu, tímastjórn og minni, sem og aðferðum til að draga úr frestun. Þótt ADHD verði ekki upprætt með bókalestri má draga úr þeirri hömlun sem einkennin valda og hvernig má hámarka styrkleika sína.
14.02.2024
Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna fta. miðvikudaginn 16. apríl kl. 19:30. Aðalfundurinn fer fram í hátíðarsal ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna. Áhugsamt félagsfólk er hvatt til að skrá sig á Facebook viðburð aðalfundarins svo áætla megi mætingu - sjá nánar í frétt.
05.02.2024
Á þessum fundi verður farið yfir ADHD út frá sjónarhóli karlmanna. Rætt verður um birtingarmyndir ADHD, og ýmislegt fleira. Fræðslufundur er haldinn í dag þann 5. febrúar kl. 20:00 á Háaleitisbraut 13, 4. hæð Guðni Jónasson verður umsjónarmaður fundarins en hann starfa hjá ADHD samtökunum.
Þátttakendur eru hvattir til að taka þátt í umræðum og spyrja spurninga.
Hlekkur að facebook viðburði: https://fb.me/e/4biKnXIj7
Hlekkur til að skrá sig sem félagsmaður: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Allir velkomnir!
25.01.2024
ADHD samtökin fta hafa sent ISAVIA, Samgöngustofu, Icelandair, Fly Play, Heilsuvernd og Fluglæknasetrinu formlegt erindi þar sem óskað er eftir skýrum svörum við nokkrum spurningum er varða starfshætti þessara rekstraraðila þegar kemur að ráðningum og eftirliti með heilsufari starfsfólks tengt flugi, ekki síst með tilliti til ADHD og mögulegrar lyfjanotkunar vegna þess.
Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunnar á undanförnum mánuðum um innleiðingu skimana flugáhafna hér á landi m.a. vegna svokallaðra „geðvirkra efna“ og reynslu starfsfólks íslenskra flugfélaga af framkvæmd umræddra skimana telja ADHD samtökin ljóst að með margvíslegum hætti sé nú brotið gegn ýmsum grundvallarréttindum fólks sem starfar við flug á Íslandi, ekki síst fólki með ADHD.
Með tilvísun í 75. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 um atvinnufrelsi telja ADHD samtökin því áríðandi að upplýst verði án tafar um þær vinnureglur og/eða leiðbeiningar sem unnið er eftir hjá þessum rekstraraðilum og að skýrt komi fram á hvaða lagaforsendum, reglugerðum eða öðrum réttarheimildum þeir byggi starfshætti sína.
ADHD samtökin fta. munu fylgja erindunum eftir, upplýsa um framgang þeirra og leita allra nauðsynlegra leiða til að tryggja réttindi fólks með ADHD til jafns við aðra. ADHD samtökin fta. hvetja jafnframt til sjálfstæðrar skoðunar löggjafans, umboðsmanns Alþingis, viðeigandi ráðuneyta og stéttarfélaga á málefninu, enda varðar það grundvallarréttindi borgaranna.