Frí kynning á ADHD og fjármálum

Valdís Hrönn verður með örfyrirlestur þar sem hún kynnir grunnatriði sem snúa að ADHD og fjármálum 4. nóvember sem er opinn fyrir alla. Linkur er neðst í fréttinni.

Dagana 12. og 19. nóvember er hún svo með frábært námskeið á vegum ADHD samtakanna um ADHD og fjármál þar sem hún fer betur í þá þætti sem hún kynnir stuttlega á opna fyrirlestrinum.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu áskoranir varðandi ADHD og fjármála yfirsýn. Farið yfir hvernig við getum byggt upp betra samband við fjármálin okkar, unnið með hvatvísi og segjum bless við skömmina sem fylgir oft óreiðu í fjármálum. Mismunandi aðferðir kenndar til að setja okkur fjárhagsleg markmið og standa við þau og hvar við getum sparað. Farið yfir hvernig er hægt að halda heimilisbókhald á einfaldan og skemmtilegri hátt og hvernig við búum okkur til ADHD vænar fjármála rútínur. Við einbeitum okkur betur að því að byggja upp jákvæðar tilfinningar fyrir fjármálin okkar og hvað það kostar okkur í raun og veru að lifa. Þú færð verkfæri eftir námskeiðið til þess að vera betur tengd við peningana þína til að stjórna þeim í stað þess að þeir stjórni þér.

Skráning á vefnámskeiðið er í í fullum gangi og allar upplýsingar má finna hér:ADHD og fjármál | ADHD samtökin 

Linkur á örfyrirlestur: https://www.bergcoaching.is/service-page/fj%C3%A1rm%C3%A1l-me%C3%B0-adhd?category=4d16f209-a137-4b19-8884-8bad86885106&referral=service_list_widget