21.05.2015
Mænuskaðastofnun Íslands, SEM samtök endurhæfðra mænuskaddaðra, MS félagið, MND félag Íslands, Lauf félag flogaveikra, Heilaheill, Geðhjálp og Parkinsonfélagið óska eftir stuðningi íslensku þjóðarinnar við beiðni þeirra til aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, um að mæla fyrir því við fulltrúa aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna að þær samþykki að bæta við nýju þróunarmarkmiði sem snýr að því að efla rannsóknir á taugakerfinu og auka á þann hátt skilning á starfsemi þess.
19.05.2015
Munið síðasta spjallfund vetrarins annað kvöld. Vilhjálmur Hjálmarsson og Snorri Páll Haraldsson leiða umræður um sumarleyfið
15.05.2015
Biðtími hjá Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eftir greiningu á ADHD og skyldum röskunum hjá börnum er allt að 12 mánuðir. Nú bíða 310 börn greiningar og af þeim eru 65 börn á forgangslista. Biðtími forgangsbarna er 5–8 mánuðir. Þetta kemur meðal annars fram í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Páls Vals Björnssonar, þingmanns Bjartrar framtíðar.
07.05.2015
Skifstofa ADHD samtakanna verður lokuð föstudaginn 8. maí vegna vorráðstefnu Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Hægt er að hafa samband með pósti á adhd@adhd.is. Opnum aftur mánudag 11. maí klukkan 13:00
06.05.2015
Minnum á spjallfundinn fyrir foreldra og forráðamenn í kvöld, miðvikudag 6. maí. Yfirskrift fundarins er "Sumarfríið" og leiðir Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur fundinn. Fundurinn verður að Háaleitisbraut 13 - 2.hæð og hefst klukkan 20:30. Allir velkomnir í kaffi og notalega stund án endurgjalds.
05.05.2015
"Getum við gert eitthvað gagnlegra við þann mikla arð sem náttúruauðlindirnar okkar skila en að bæta lífsgæði og tækifæri barnanna okkar, ekki síst þeirra barna sem þurfa á svolitlum stuðningi að halda og eiga rétt á honum samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna?" Þannig spurði Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar á Alþingi í dag. Páll Valur er einn sendiherra barna á Alþingi og vekur iðulega athygli á brotalömum í opinbera kerfinu sem sinna á réttindum barna.
04.05.2015
Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur flytur fræðslufyrirlestur um netnotkun í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, þriðjudaginn 12. maí klukkan 20:00. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku.