Námskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD

Skráningu er að ljúka á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD. Námskeiðið verður haldið 9. og 16. nóvember milli 10:00 og 14:00 í Reykjavík, en þátttaka er möguleg í gegnum Facebook um allt land.

Nýtt endurskinsmerki frá Hugleiki Dagssyni

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD. Í tilefni af mánuðnum munu ADHD samtökin standa fyrir fjölbreyttum viðburðum og með ýmsum hætti, vekja athygli á málefnum fólks með ADHD, en gera má ráð fyrir að hátt í 20.000 Íslendingar séu með ADHD - greint eða ógreint, börn og fullorðnir. Til að marka upphaf ADHD vitundarmánaðarins að þessu sinni, afhenti formaður ADHD samtakanna, Elín H. Hinriksdóttir, heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, fyrsta endurskinsmerki ADHD samtakanna árið 2019, en venju samhvæmt, er nýtt endurskinsmerki, teiknað af Hugleiki Dagssyni, selt í fjáröflunarskini fyrir samtökin, í októbermánuði ár hvert. Dagana 5-20 október verður endurskinsmerkið selt víða um land, bæði í heimahúsum, á torgum og á fjölda útsölustaða Bónuss, Eymundsson, Íslandspóst, N1 og á adhd.is Endurskinsmerkið kostar kr. 1.000,- og rennur allur ágóði af sölunni til ADHD samtakanna.

ADHD er snilld

ADHD er snilld! ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um hið góða, fallega og fyndna í lífi fólks með ADHD, miðvikudaginn 2. október nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD. Umsjón með fundinum hefur Hákon Helgi Leifsson, snillingur og stjórnarmaður í ADHD samtökunum, sem skrifaði áhugaverða grein um sama efni fyrir nokkru - sjá hér: https://bit.ly/2GHVoeZ. Þar segir Hákon Helgi m.a. þetta: "Við erum öll svo vön því að heyra það neikvæða um ADHD. Fréttir litaðar um meinsemdir svífa inn í vit hins almenna borgara og hefur áhrif til hins verra. En hvað um hið góða, fallega, fyndna og hið ótrúlega skemmtilega sem alltaf er áberandi í hug okkar, gjörðum og hjörtum? Til þess að komast nær fullyrðingu titilsins verð ég að snerta á hinu samtímis. En það er eiginlega ADHD í hnotskurn. ADHD er heilkenni jaðranna, getur verið eins svart og desembernótt á miðhálendinu eða hvítt eins og nýfallinn snjór á aðfangadagsmorgni." Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bækling samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni. Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna. Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Betra líf með ADHD - spjallfundur á Akureyri

ADHD Norðurland stendur fyrir opnum spjallfundi á Akureyri, um betra líf með ADHD, fimmtudaginn 12. september kl. 20:00. Fundurinn er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.

ADHD og systkini - opinn spjallfundur

ADHD og systkini. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um ADHD og systkini, miðvikudaginn 4. september nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.

Hvetjum okkar fólk - Team ADHD!

Vel á annað hundrað einstaklingar munu hlaupa í fyrir ADHD samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu í ár - fleiri en nokkru sinni fyrr. Nú þarf þessi stóri og kröftugi hópur á okkar stuðningi að halda. Áfram Team ADHD!

Ég get! Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni með ADHD.

Á næstu dögum mun skráningu ljúka, á sjálfstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna fyrir 14-16 ára ungmenni með ADHD - námskeiðið Ég get! Enn eru öfrá sæti laus, en námskeiði er nú hægt að greiða með frístundastyrkjum sveitarfélaga.

Vegið að atvinnuréttindum fólks með ADHD innan lögreglunnar

ADHD samtökin mótmæla harðlega breyttum inntökuskilyrðum sem Mennta- og starfþróunarsetur lögreglurnar hefur nýverið upplýst um. Þar er í fyrsta sinn hérlendis þrengt verulega að atvinnu- og menntamöguleikum fólks með ADHD. ADHD samtökin skora á Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, ríkislögreglustjóra og ráðherra málaflokksins, að afturkalla nýju inntökureglurnar nú þegar, þar sem markmið þeirra virðist það eitt að útiloka fólk með ADHD frá störfum innan lögreglunnar. Meðfylgjandi er ályktun stjórnar ADHD samtakanna um málið.

ADHD og heimanám - spjallfundur á Akureyri

ADHD Norðurland stendur fyrir opnum spjallfundi á Akureyri, um ADHD og heimanám, á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst. Fundurinn er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.

ADHD og heimanám - opinn spjallfundur

ADHD og heimanám. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um ADHD og heimanám, í kvöld, miðvikudaginn 14. ágúst nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD.