ADHD fullorðina - ný bók

ADHD fullorðinna eftir Báru Sif Ómarsdóttur og Sóley Dröfn Davíðsdóttur
ADHD fullorðinna eftir Báru Sif Ómarsdóttur og Sóley Dröfn Davíðsdóttur

Í lok síðasta mánaðar kom út glæný bók sem varpar ljósi á ADHD eins og það kemur fram á fullorðinsárum. Það er farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferlið eins og það er hér á landi, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því að vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til að bæta skipulag, einbeitingu, tímastjórn og minni, sem og aðferðum til að draga úr frestun. Þótt ADHD verði ekki upprætt með bókalestri má draga úr þeirri hömlun sem einkennin valda og hvernig má hámarka styrkleika sína.

Höfundar bókarinnar eru sálfræðingar og hafa áralanga reynslu af greiningu og ráðgjöf vegna ADHD. Bára Sif Ómarsdóttir stýrir ADHD-teymi við Kvíðameðferðarstöðina. Sóley Dröfn Davíðsdóttir er yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina. Bókin er fáanleg í vefverslun samtakanna, hlekkur hér