Taktu stjórnina! Fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD.
Enn eru nokkur sæti laus á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! sem byrjar 29. september 2020. Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og vegna COVID faraldursins verður sérstaklega gætt að sóttvörnum og tveggja metra reglunni á námskeiðinu.
Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
- Skilningur á ADHD og ólík einkenni
- Algengir fylgikvillar
- Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
- Markmiðasetning
- Félagsleg samskipti almennt
- Vinna og nám
- Fjármálastjórn
- Heimilið
- Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
- Heilbrigt líferni
Markmið námskeiðsins
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.
Námskeiðið verður eftirtalda daga:
Þriðjudag 29. september 2020 kl. 20:00-22:00
Fimmtudag 1. október 2020 kl. 20:00-22:00
Þriðjudag 6. október 2020 kl. 20:00-22:00
Fimmtudag 8. október 2020 kl. 20:00-22:00
Þriðjudag 13. október 2020 kl. 20:00-22:00
Námskeiðið verður í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi.
NÁMSKEIÐSVERÐ:
34.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
39.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is