Síðasti spjallfundur ársins í kvöld - Jólafundur

ADHD samtökin bjóða upp á spjallfund í kvöld, miðvikudaginn 6. desember 2017 kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal að Háaleitisbraut 13 - I.hæð og er öllum opinn. Þetta er síðasti spjallfundurinn fyrir jól og verður yfirbragð hans með jólalegu sniði.

Allir eru velkomnir, heitt á könnunni, kakó og smákökur og kósý stemmning sem kostar ekkert.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.