Sautján þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hafa ákveðið að hlaupa í þágu ADHD samtakanna og sett
af stað áheitasöfnun.
ADHD samtökin eru eitt 139 góðgerðarfélaga sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni
Íslandsbanka geta hlaupið fyrir í ágúst næstkomandi og um leið vakið athygli á málstaðnum.
Þrítugasta og fyrsta Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn 23. ágúst.
Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is.
Hér má sjá þá sem þegar hafa ákveðið að hlaupa í þágu ADHD
samtakanna og hvetjum við alla til að heita á hlauparana og leggja þar með góðu málefni lið.
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og
safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en ADHD samtökin eru eitt
þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á
hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.
Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur
farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.
Hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda sms
skilaboð.
Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka minnum við á áheitasöfnun
því samfara.