Biðlistar eftir þjónustu geðlækna við fullorðna eru svo langir að það getur tekið hálft ár að fá aðstoð
þeirra. Formaður ADHD samtakanna segist daglega fá símtöl frá örvæntingarfullu fólki sem veit ekki hvar aðstoð er að fá.
Framkvæmdastjóri ADHD samtakana segir stöðuna grafalvarlega.
Þjónusta við börn og unglinga með geðrænan vanda hefur verið í nokkuð góðu horfi undanfarin ár að sögn
framkvæmdastjóra ADHD-samtakanna. Hún segir veruleikann sem blasi við þeim þegar þau ná átján ára aldri allt annan og
erfiðari þar sem litla þjónustu sé að fá.
„Bið eftir þjónustu hjá geðlæknum er gríðarlega mikil," segir Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD-samtakanna. „Að
meðaltali berast okkur þrjú til fjögur símtöl eða póstar á dag sem varða fullorðna."
Hún segir það geta tekið þrjá mánuði að fá fyrsta viðtal hjá geðlækni og um hálft ár að komast í
meðferð. Stundum hafi hún orðið að vísa því á bráðamóttöku geðdeildar upp á Landspítalanum.
„Það eru biðlistar á BUGL, ég veit ekki hvernig þeim er háttað en hluti af þeim er vegna þess að BUGL er enn að sinna ungmennum
sem eru átján ára og eldri," segir Ellen. „Þegar þú verður átján ára þá ertu orðin fullorðin og
þá átt þú að fara út á hinn almenna markað og sækja þér geðlæknaþjónustu. En þeir eðlilega,
ég lái þeim það ekki, vilja ekki sleppa börnum, sem þeir hafa kannski verið með í meðferð frá sex til sjö ára aldri,
þeir vilja ekki sleppa þeim því þeir vita að það er engin sem getur tekið við þeim. Og það er grafalvarlegt mál."
Hún segir þegar til góðar leiðbeiningar frá Landlækni um greiningar og meðhöndlun fólks með ADHD en eftir þeim sé ekki
farið. Hún hafi þó komið upplýsingum um stöðuna áleiðis á fundi sem hún fékk með velferðarráðherra
í dag.
Fréttin er tekin af vef visir.is 27. apríl 2012 hér: http://www.visir.is/langir-bidlistar-hja-gedlaeknum/article/2012120429041