GPS námskeið fyrir stelpur - Breyttur tími - Hefst 18. apríl 2015

 

ADHD samtökin bjóða upp á sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stelpur í 8. til 10. bekk. Námskeiðið hefst laugardaginn 18. apríl 2015 en foreldrakynning verður fimmtudaginn 16. apríl. 

Námskeiðsgjald er kr. 21.000,-


SKRÁNING HÉR

 

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD

  • Lærðu að þekkja þitt ADHD

  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir

  • Félagsfærni

  • Kynvitund

  • Lífsstíll

  • Áhættuhegðun

  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk 2 klst. kynningar fyrir foreldra í upphafi.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara. 

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir stúlkur í 8. - 10. bekk hefst með foreldrakynningu fimmtudaginn 16. apríl 2015 og lýkur laugardaginn 16. maí 2015.

 
Foreldrakynning       Fimmtudagur 16. apríl       kl. 20:00 - 22:00  
1. tími   Laugardagur 18. apríl   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Mánudagur 20. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Miðvikudagur 22. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Mánudagur 27. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
5. tími   Fimmtudagur 30. apríl   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Mánudagur 4. maí   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Þriðjudagur 11. maí   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 16. maí   kl. 11:00 - 15:00  



SKRÁNING HÉR

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna