Hlauptu fyrir team ADHD í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka

Taktu daginn frá 24. ágúst 2024
Taktu daginn frá 24. ágúst 2024
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 24. ágúst 2024 og skráningar í hlaupið eru komnar á fullt. Áheitasöfnun hlauparanna er í ár líkt og áður gríðarlega mikilvægur líður í fjáröflun ADHD samtakanna. ADHD samtökin hafa í gengum tíðina notið góðs af frábærum hópi fólks sem hefur hlaupið undir nafni samtakanna og verið hluti af #TeamADHD og við fögnum hverjum nýjum þátttakanda. Nú er hægt að slást í hópinn með því að skrá sig hér.
 
Þau sem hlaupa fyrir ADHD Samtökin fá flottann hlaupabol frá samtökunum sem þakklætisvott. Þegar þú hefur skráð þig til leiks getur þú sent okkur póst á adhd@adhd.is og valið hvaða bol þú vilt - margar tegundir eru í boði.

 Við hvetjum einnig öll til þess að styðja þennan flotta hóp, bæði í formi áheita og hvatningar á hlaupadeginum.

 
Með því að heita á hlauparana í Team ADHD getum við gert starfsemi ADHD samtakanna enn öflugri.