Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna.
Finnst einhverjum ásættanlegt að búa í samfélagi þar sem bið eftir greiningu og meðferð er talin í árum, fremur en vikum eða fáum mánuðum?
Fyrir einstakling með ADHD getur greining og meðferð breytt öllu – nám, vinna, félagsleg tengsl, vímuefnanotkun, sambönd, heimilislíf, geðheilsa, almennt heilbrigði … sjálfsögð lífsgæði geta hæglega ráðist af hversu fljótt fólk með ADHD fær greiningu og í framhaldi, viðunandi meðferð.
Við fullorðnum einstaklingi með ADHD blasir í dag sú ískalda staðreynd að bíða í u.þ.b. þrjú ár eftir þessari lífsnauðsynlegu þjónustu og börnum í allt að tvö ár. Á meðan er lífið í biðstöðu og flest sígur á ógæfuhliðina.
Þessu ástandi verður og má auðveldlega breyta. Þetta er spurning um val. Þetta snýst um stefnu og efndir þeirra sem setja kúrsinn, hvort heldur á Alþingi eða hjá sveitarfélögum.
Á síðasta ári samþykkt á Alþingi að fella sálfræðiþjónustu undir almenna kostnaðarþáttöku Sjúkratrygginga. Það var vel.
En heldur finnst mér rýrt um efndir. Í miðjum heimsfaraldri tilkynnti ráðherra fjármála að ekki kæmi til greina að heilbrigðiskerfið fengi aukið fjármagn í þennan lið. Korter í kosningar tilkynnir þó heilbrigðisráðherra að einhverjar krónur verði settar í afmarkað tilraunaverkefni. Annað eigi bara að ræða fram undir kjördag. Skyldi einhvern undra að ákall berist nú frá SÍF um aukna sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum, enda er þörfin um bætt aðgengi að greiningu og meðferð hreint ekki bundinn við þann hóp sem ADHD samtökin tala fyrir.
Í ofanálag hefur skortur á geðlæknum lengi vofað yfir, fjöldi starfandi geðlækna að komast á aldur og nýliðun of hæg.
Enn og aftur ítreka ég að þetta er spurning um val.
Ég vil betra samfélag án endalausra biðlista. Samfélag sem styður alla til betra lífs, óháð ADHD eða hverju öðru sem tilheyrir heilbrigðri lífsflóru. Mitt hlutverk sem almenns kjósanda er að velja fulltrúa sem ég trúi og treysti til verksins.
Það verður spennandi að heyra af stefnu flokkanna á opnum fundi ADHD samtakanna í Grósku í Vatnsmýri, kl. 15 á laugardaginn. Ég hvet einstaklinga með ADHD og aðstandendur þeirra til að fylgjast með, á staðnum eða í streymi. Sem og alla sem tekið geta undir mín orð á eigin forsendum. Þær tugir þúsunda Íslendinga geta ráðið miklu í komandi kosningum.
Höfundur er formaður ADHD samtakanna.