Nú eru síðustu forvöð að skrá sig á Áfram Stelpur! námskeiðið sem er nú í maí, námskeiðið er það síðasta fyrir sumarið og verður ekki aftur fyrr en í haust. Kennt er í fjórum lotum miðvikudagsmorgnanna 4, 11, 18 og 25. maí milli 9:00 og 11:30
Markmið námskeiðs:
Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.
Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/afram-stelpur-sjalfsstyrkingarnamskeid-fyrir-konur-med-adhd