Aðstandendanámskeið 13-18 ára unglinga með ADHD

Dagsetning Tími Staðsetning
Haust 2025 kl. 09:00 - 16:00 Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í lokuðu streymi.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 13 - 18 ára aldri verður haldið haustið 2025 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í lokuðu streymi.

Námskeið er einn laugardag frá kl. 09:00-16:00.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið er upp á lokað streymi fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Innihald námskeiðs: Hvað er ADHD (almennt um ADHD), ADHD og fíkn - fyrstu merki um fikt, ADHD og fjölskyldan, Tilfinningar og líðan barna með ADHD, ADHD og nám, kynning á þjónustu Sjónarhóls.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd