TÍA - námskeið um Tómstundir, Íþróttir og ADHD

TÍA - Tómstundir, Íþróttir og ADHD
TÍA - Tómstundir, Íþróttir og ADHD

Hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD í tveim hlutum fyrir fagfólk sem starfar við íþrótta- og tómstundastarf  sem og aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD.

Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN, ásamt því er Vanda nýkjörin formaður KSÍ og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.

NÁMSKEIÐSLÝSING:

Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja skipta þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun.

Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt. Sem þjálfari færð þú aðgang að praktískum aðferðum til þess að vinna með krökkum með ADHD frá sérfræðingum á sviðinu.

Skráning fyrir félagsmenn ADHD samtakanna SKRÁNING HÉR

Skráning fyrir aðra SKRÁNING HÉR

STAÐSETNING:

 FJARNÁMSKEIÐ: Í gegnum fjarfundabúnað sem streymt verður í rauntíma.

DAGSSETNING 

Tvö skipti, þrír tímar í senn, með þrigga vikna millibili 5. og 26. nóvember 2022:

Laugardaginn 5. nóvember

Laugardaginn 26. nóvember
*ATH nákvæm tímasetning síðar.

SKRÁNINGU LÍKUR:

1. nóvember 2022

ATH! Takmarkað sætaframboð. Fyrstir koma fyrstir fá.

Nánari upplýsingar eru veittar á  skrifstofu ADHD samtakanna í síma 581 1110 eða með því að senda póst á netfangið adhd@adhd.is