TÍA, fjarnámskeið fyrir þjálfara og frístundarstarfsmenn

Vinnur þú með orkuboltum? TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD er námskeið fyrir þá sem vinna með börnum með ADHD, hvort sem það er í tómstundum, íþróttum eða skólastarfi. Námskeiðið haldið í þriðja sinn daganna 28. apríl og 19. maí og er í fjarfundarformi. Skráningu lýkur á næstu dögum.

Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN, ásamt því er Vanda nýkjörin formaður KSÍ og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.

Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja skipta þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun.

Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt.

Þú sem þjálfari/leiðbeinandi færð aðgengi að praktískum aðferðum við að vinna með krökkum með ADHD frá sérfræðingum á sviðinu.

SKIPULAG:

Námskeiðið er kennt í tveimur lotum 3 klst. í senn. Á milli lota æfa þátttakendur sig í að beita aðferðum námskeiðsins.
Markmið með námskeiðinu er að auka vitund þjálfara fyrir stöðu og styrkleikum þátttakenda með ADHD og miðla leiðum hvernig hægt er að mæta þörfum þeirra og hópsins.

DAGSETNINGAR OG TÍMI:

28. apríl  fimmtudagur kl. 17:00 – 20:00
19. maí   fimmtudagur kl. 17:00 – 20:00

NÁMSKEIÐSVERÐ:

29.000,- fyrir félagsmenn ADHD samtakanna SKRÁNING HÉR

34.000,- fyrir aðra SKRÁNING HÉR

Nánari upplýsingar eru veittar á  skrifstofu ADHD samtakanna í síma 581 1110 eða með því að senda póst á netfangið adhd@adhd.is
Notið tækifærið og fáið praktíska nálgun á að vinna með krökkum með ADHD í ykkar starfi.