Þú vinnur með ADHD - opið málþing ADHD samtakanna um ADHD og vinnumarkaðinn.
ADHD samtökin efna til málþings á Grand Hótel, föstudaginn 1. Nóvember nk. um ADHD og vinnumarkaðinn. Yfirskrift málþingsins er „Þú vinnur með ADHD“.
Markmiðið með málþinginu er að varpa ljósi á stöðu einstaklinga með ADHD á vinnumarkaði. Boðið verður upp á fjölda fróðlegra fyrirlestra, m.a. kemur til okkar danskur atvinnuráðgjafi sem fer yfir ADHD á vinnumarkaði, áskoranir og styrkleika. Þá verður fjallað um kulnun í starfi hjá einstaklingum með ADHD og atvinnuráðgjafi hjá Virk segir frá nýju úrræði sem byggir á stuðningi út á vinnumarkað og eftirfylgd frá þverfaglegu teymi.
Þá mun einstaklingur með ADHD og stjórnandi fyrirtækis deila reynslu sinni af vinnumarkaðnum með málþingsgestum.
Málþingið er opið öllum en skráning fer fram á adhd.is
Dagskrá málþings verður þessi:
12:00 – 12:30 Móttaka og skráning
12:30 – 12:35 Setning málþings
Elín H. Hinriksdóttir, formaður ADHD samtakanna
12:35-12:45 Ávarp félags- og barnamálaráðherra
Ásmundur Einar Daðason félags-og barnamálaráðherra
12:45 – 13:10 Áhugahvöt og trú á eigin getu skiptir öllu!
Anna Lóa Ólafsdóttir atvinnulífstengill og sérfræðingur hjá Virk.
13:10- 14:10 ADHD/ADD at work
Tine Hedegaard atvinnuráðgjafi, ADHD samtökin Danmörku
14:10 – 14:35 Reynslusaga einstaklings með ADHD af atvinnulífinu
Hjálmar Örn Jóhannsson
14:35 - 15:00 KAFFI OG VEITINGAR
15:00 – 15:25 Kulnun í starfi hjá einstaklingum með ADHD
Sóley Dröfn Davíðsdóttir sálfræðingur
15:25 – 15:50 Reynsla stjórnanda
Sigurjón Sigurðsson, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri
15:50 – 16:00 Samantekt og málþingsslit
Málþingið er hluti af alþjóðlegum ADHD vitundarmánuði og er lokaviðburður mánaðarins.
Málþingsstjóri: Aron Leví Beck, borgarfulltrúi.
Staður: Grand Hótel Reykjavík
Dagsetning: Föstudagur 1. nóvember 2019
Stund: Málþingið hefst klukkan 12:00 og stendur til klukkan 16:00
Þátttökugjald: Fyrir félagsmenn ADHD samtakanna kr. 2.500,- en 5.000,- kr. fyrir aðra
Skráning: ADHD.is