Þú ert númer 1250 í röðinni... Opið málþing um afleiðingar ómeðhöndlaðs ADHD, biðlista og samfélagslegan kostnað.
Árlega standa ADHD samtökin fyrir málþingi um málefni er varða einstaklinga með ADHD. Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður en tilgangur hans er að vekja athygli á málefnum einstaklinga með ADHD. Markmið málþingsins í ár er m.a. að varpa ljósi á þann gríðarlega kostnað sem skapast meðan beðið er eftir þjónustu, bæði hjá einstaklingnum og síðast en ekki síst samfélaginu öllu.
Þrátt fyrir áralanga baráttu ADHD samtakanna fyrir bættri þjónustu við fólk með ADHD, hafa biðlistar eftir ADHD greiningum lengst ár frá ári - bæði hjá börnum og fullorðnum. Nú í lok árs 2022 eru hátt í 900 börn sem bíða eftir greiningu og yfir 1.200 fullorðnir sem gerir það að verkum að biðtíminn getur orðið allt upp í tvö til þrjú ár!
Langur biðtími eftir greiningum, skortur á meðferðarrúrræðum og gríðarlegir fordómar gagnvart notkun ADHD lyfja skerða lífsgæði þúsunda einstaklinga á degi hverjum og valda þeim sem og samfélaginu öllu gríðarlegum skaða. Aðgerðarleysi stjórnvalda er í raun óskiljanlegt enda málið grafalvarlegt - dauðans alvara! Hægt er að nálgast frekari fræðslu og heyra frásagnir annarra með því að kynna sér herferð samtakanna er hleypt var af stokkunum í tilefni vitundarmánaðar. https://tinyurl.com/5bfbd92b
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ávarpar málþingið og afhendir Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna sem nú eru veitt í annað sinn.
Málþingið er haldið fimmtudaginn 27. október næstkomandi kl. 13:00-16:00 í Háteigi á Grand Hótel.
Málþinginu verður streymt fyrir félagsfólk á streymissíðu félagsins á Facebook- https://www.facebook.com/groups/613013522504922
Skráning á málþingið er hér
Dagskrá
13:00 - 13:10 |
Bil |
Setning málþings |
|
|
|
|
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga |
|
|
|
13:10 - 13:20 |
|
Ávarp |
|
|
|
|
Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna |
|
|
|
13:20 - 13:30 |
|
Afhending Hvatningarverðlauna |
|
|
|
|
|
13:30 - 14:10 |
|
ADHD er ekki til |
|
|
|
|
Haraldur Erlendsson geðlæknir |
|
|
|
14:10 - 14:50 |
|
Viljum við betra líf ? Um verndandi áhrif greininga, meðferðar og lyfja vegna ADHD. |
|
|
Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi |
|
|
|
14:50 - 15:10 |
|
KAFFIHLÉ |
|
|
|
15:10 - 15:40 |
|
Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna |
|
|
Elvar Daníelsson yfirlæknir |
|
|
|
15:40 - 15:50 |
|
Reynslusaga |
|
|
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir alþingismaður |
|
|
|
15:50 - 16:00 |
|
Samantekt og málþingsslit |
Málþingið er hluti af alþjóðlegum ADHD vitundarmánuði og er lokaviðburður mánaðarins.
Skránignargjald er 4.000.- en verð fyrir félagsfólk samtakanna er 2.000.- Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér - Skráning í ADHD samtökin
Skráning á málþingið