ADHD samtökin bjóða á ný upp á fræðslunámskeið og ráðgjöf fyrir fullorðna með ADHD. Námskeiðið nefnist "Taktu stjórnina" og stendur í 10 klukkustundir. Námskeiðið hefst mánudaginn 26. febrúar 2018 og lýkur mánudaginn 12. mars 2018.
Skráning er hafin á vef samtakanna en fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Skráning HÉR
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is
Tekið verður á eftirfarandi þáttum:
- Skilningur á ADHD og ólík einkenni
- Algengir fylgikvillar
- Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
- Markmiðasetning
- Félagsleg samskipti almennt
- Vinna og nám
- Fjármálastjórn
- Heimilið
- Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
- Heilbrigt líferni
Markmið námskeiðsins
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.
Námskeiðið verður eftirtalda daga:
- mánudag 26. febrúar kl. 20:00-22:00
- fimmtudag 28. febrúar kl. 20:00-22:00
- mánudag 5. mars kl. 20:00-22:00
- fimmtudag 7. mars kl. 20:00-22:00
- mánudag 12. mars kl. 20:00-22:00
Námskeiðið verður í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala"
Verð fyrir námskeiðið er kr. 34.500,- og er skráning hafin á vef ADHD samtakanna.
Skráning HÉR
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is
Senda póst til ADHD samtakanna