ADHD samtökin bjóða nú upp á fræðslunámskeið og ráðgjöf fyrir fullorðna með ADHD. Námskeiðið nefnist
"Taktu stjórnina" og stendur í 10 klukkustundir, laugardagana 29. nóvember og 6. desember. Skráning er hafin á vef samtakanna en fjöldi
þátttakenda er takmarkaður.
Tekið verður á eftirfarandi þáttum:
Dagur 1: Um ADHD
- Skilningur á ADHD og ólík einkenni
- Algengir fylgikvillar
- Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
- Markmiðasetning
- Félagsleg samskipti almennt
Dagur 2: Skipulag í daglegu lífi
- Vinna og nám
- Fjármálastjórn
- Heimilið
- Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
- Heilbrigt líferni
Markmið námskeiðsins
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingamyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í
að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með
upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja
sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldi, maki, starfsmaður og borgari.
Námskeiðið verður laugardagana 29.nóvember og 6.desember 2014 að Háaleitisbraut 13, 4.hæð frá
11-16 báða dagana. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir
sérkennari.
Verð fyrir námskeiðið er kr. 32.000,- og er skráning hafin á vef ADHD samtakanna.