Skráningu líkur 19. september 2021
FJARNÁM/STAÐNÁM: TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD - NOKKUR LAUS PLÁSS ! Hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD í tveim hlutum fyrir fagfólk sem starfar við íþrótta- og tómstundastarf og aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD.
Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.
NÁMSKEIÐISLÝSING:
Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja skipta þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun.
Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt.
Þú sem þjálfari færð aðgengi að praktískum aðferðum við að vinna með krökkum með ADHD frá sérfræðingum á sviðinu.
→Við mælum með þessu námskeiði. Það er aldrei að vita nema að þú komir til með að skara fram úr sem þjálfari krakka með ADHD í kjölfarið!
STAÐNÁM: Námskeiðið verður haldið að Háaleitisbraut 13, 4. hæð /
FJARNÁM: Í gegnum fjarfundabúnað sem streymt verður í rauntíma.
SKIPULAG:
Fyrri lota verður haldin þann 20. september 2021 kl. 10:00-13:00 og seinni lotan þann 11. október 2021 kl. 10:00-13:00. Innifalið í námskeiðinu er hádegishressing.
Námskeiðið er kennt í tveimur lotum 3 klst. í senn. Á milli lota æfa þátttakendur sig í að beita aðferðum námskeiðsins.
- tími 20. september kl. 10:00-13:00
- tími 11. október kl. 10:00-13:00
Markmið með námskeiðinu er að auka vitund þjálfara fyrir stöðu og styrkleikum þátttakenda með ADHD og miðla leiðum hvernig hægt er að mæta þörfum þeirra og hópsins.
29.000,- fyrir félagsmenn ADHD samtakanna SKRÁNING HÉR
34.000,- fyrir aðra SKRÁNING HÉR
Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér.
- SKRÁNINGU LÍKUR 19. september 2021
Hér er um að ræða nýung á vegum ADHD samtakanna þar sem starfsfólk tómstunda- og íþróttahreyfinga fá sérstaka kennslu gagnvart því að vinna með krökkum með ADHD og skyldar raskanir.
- Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu ADHD samtakanna í síma 581 1110 eða með því að senda póst á netfangið adhd@adhd.is
- Notið tækifærið og fáið praktíska nálgun á að vinna með krökkum með ADHD í starfi ykkar í sumar.