Mikill fjöldi á fræðslufundi um ADHD og einhverfu

Um 100 manns mættu á fræðslufundinn um ADHD og einhverfu í sal Seljakirkju í gærkvöldi. Einnig var fjöldi félagsfólks sem fylgdist með í streymi. Streymið verður aðgengilegt fyrir félagsfólk í ADHD samtökunum til 10. október inni á ADHD í beinni á facebook. Við þökkum Sigrúnu Jónsdóttur fyrir uppbyggilega fræðslu og minnum á að hægt er sjá alla þá viðburði sem ADHD samtökin standa fyrir á heimasíðu samtakanna adhd.is