Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna skrifar grein í Fréttablaðið
í dag - 10.10.2013:
"Öll viljum við betra samfélag, öll viljum við geta treyst grunnstoðum samfélagsins fyrir heilsu okkar og velferð. Ekki satt? Tilfinningin er hins vegar oft
sú að við fáum litlu um það ráðið. Ein megináherslan í starfi Öryrkjabandalags Íslands á að vera samstarf
og samningsumleitanir fyrir samfélagið, með áherslu á samræðu milli stjórnvalda, félaga sjúkra og fatlaðra og atvinnulífsins um
lausnamiðaðar tillögur.
Nú þegar fjárlagafrumvarp fyrir árið 2014 er komið fram er ljóst að þar má finna margt sem eykur enn frekar á ugg og óvissu
minna félaga í ÖBÍ.
Ekki verður betur séð en bæta eigi kjör öryrkja og aldraðra og því ber vissulega að fagna. En um leið virðist lögð
áhersla á að draga úr notkun ákveðinna lyfja og auka greiðsluþátttöku vegna sjúkrahúslegu, ásamt endurskoðun
á örorkumati og almannatryggingakerfinu. Ætlunin virðist að fyrirbyggja um 600 milljóna króna kostnaðarhækkun. Slíkt hljómar
ógnandi í eyrum margra.
Félagsmenn í aðildarfélögum ÖBÍ eru um 27.000 eða rúmlega 8% þjóðarinnar og þá hafa aðstandendur ekki
verið upptaldir. Vilji ríkisstjórnin ná sátt í samfélaginu er mikilvægt að hún kalli fulltrúa þessa hóps til
samráðs. Þannig aukast líkur á heillavænlegri forgangsröðun, samfélaginu öllu til góða.
Nái ég kjöri til formanns Öryrkjabandalags Íslands 19. október næstkomandi lýsi ég mig reiðubúna til að koma að
slíku samráði fyrir hönd bandalagsins. Saman erum við sterkari!"
Greinin á visir.is