Áfram stelpur! Nýtt námskeið fyrir konur með ADHD.
Skráning er hafin á nýtt fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna fyrir konur með ADHD – Áfram stelpur! Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 28. april nk. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!
Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.
Námskeiðið verður eftirtalda daga:
Þriðjudag 28. apríl kl. 20:00-22:00
Fimmtudag 30. apríl kl. 20:00-22:00
Þriðjudag 5. maí kl. 20:00-22:00
Fimmtudag 7. maí kl. 20:00-22:00
Þriðjudag 12. maí kl. 20:00-22:00
Námskeiðið verður í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.
NÁMSKEIÐSVERÐ:
34.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
39.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is