ADHD og konur - Opinn spjallfundur

ATH!! Vegna mikillar þátttöku þá verður fræðslufundurinn í Seljakirku, Hagasel 40. Sjáumst sem flestar og tökum vinkonu með!

ADHD og konur - Opinn spjallfundur  8. nóvember kl. 20:00.

Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum ætlar að koma og fræða okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur ekki fengið greiningu á ADHD og er það ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem tekst á við kulnun í dag. Hvað er til ráða og hvar á að byrja.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. 

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar! 

Skráðu þig á Facebook viðburðinn og fáðu áminningu: https://fb.me/e/4PoNdEOFG

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt