Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD samt.
Vegna umræðna sem spunnist hafa út frá innleggi í lokuðum Facebook spjallhópi fullorðinna einstaklinga með ADHD og rötuðu jafnframt á fréttavef DV 6. mars síðast liðinn er nauðsynlegt að árétta nokkur atriði er varða ADHD lyf og hæfni einstaklinga til að stjórna ökutæki.
Ekki hætta á sviptingu ökuréttinda
Undir eðlilegum kringumstæðum á einstaklingur sem tekur örvandi ADHD lyf samkvæmt læknisráði ekki á hættu að vera sviptur ökuréttindum, enda mælist magn virka efnisins í blóðsýni ekki yfir eðlilegum mörkum. Engu breytir þó um ræði meiraprófsréttindi. Hér er átt við eftirfarandi lyf: Rítalin, Rítalín Uno, Medikinet, Medikinet CR, Concerta (og samheitalyf), Attentin og Elvanse. Sama gildir reyndar um Strattera (og samheitalyf), Wellbutrin og Modafinil/Modiodal, þó virku efnin í þeim séu ekki örvandi.
Merkingar tengjast mögulegum aukaverkunum
Ástæða þess að lyfin eru (flest) merkt með rauðum þríhyrningi tengist einfaldlega mögulegum aukaverkunum sem lýsa sér í svima, sjóntruflunum, syfju eða álíka. Fyrir flesta kemur strax í ljós hvort þetta eigi við og þá um leið augljóst að viðkomandi teljist vart hæf/ur til að setjast undir stýri. Vinnubrögð lögreglu og dómstóla endurspegla þetta og hafa gert til margra ára.
Ekki krafa um vottorð eða lyfjaskírteini
Jafnframt skal ítrekað að ekki er gerð krafa um að einstaklingur hafi dags daglega í fórum sínum vottorð frá lækni þar að lútandi, hvað þá afrit af lyfjaskírteini. Öðru máli gegnir ef fyrir hendi er grunur um misnotkun sömu lyfja og/eða annarra vímugjafa, enda teljist líkur á að viðkomandi sé ekki í ökuhæfu ástandi. Það breytir þó engu um að viðkomandi þarf ekki að hafa í fórum sínum vottorð eða lyfjaskírteini til að sýna fram á lögmæta notkun lyfja. Þeim upplýsingum má hæglega framvísa á meðan rannsókn stendur yfir og/eða fyrir rétti.
Vinnubrögð lögreglu og dómstóla
Ítrekað skal að um langa hríð hefur vinnulag lögreglu og dómstóla endurspeglað þetta, þó vissulega megi annað skilja ef einstakar lagagreinar eru túlkaðar án frekara samhengis. Eftir að hafa kynnt mér frekar tilefni fyrrnefndra skoðanaskipta í lokuðum spjallhópi á Facebook – sem síðar rötuðu á fréttasíðu DV – tel ég óhætt að fullyrða að almennt talað hafi engin breyting orðið hér á.
Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD samtakanna.
Grein Vilhjálms birtist fyrst á DV.is þann 14. mars 2019