Aðalfundur 27. nóvember 2018
Aðalfundur ADHD samtakanna verður haldinn þriðjudaginn 27. nóvember 2018, kl. 20:00, að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins verður í samræmi við lög samtakanna:
- Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári.
- Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar.
- Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna til eins árs í senn.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
Athygli er einnig vakin á eftirfarandi ákvæðum laganna:
"Lögum samtakanna verður aðeins breytt á aðalfundi þeirra. Skriflegum tillögum þar að lútandi skal skila til stjórnar félagsins, áður en til aðalfundar er boðað, með rafrænum eða öðrum rekjanlegum hætti..." og um stjórnarkjör: "Á sléttu ártali skal kosið um gjaldkera, ritara, tvo aðalmenn og einn varamann. "
Félagsmenn er hvattir til að mæta og taka þannig virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu ADHD samtakanna sem í ár fagna 30 ára starfsafmæli. Boðið verður uppá kaffiveitingar og spjall, þannig að nýjum félögum gefst gott tækifæri til að kynna sér fjölbreytta starfsemi samtakanna.
Nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu samtakanna eða í síma 5811110.
Stjórn ADHD samtakanna.