Að ná fram því besta með ADHD!

Næstkomandi fimmtudag fer Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og hegðunarráðgjafi yfir hvernig einstaklingar með ADHD og aðstandendur þeirra geta aukið þekkingu og skilning á ADHD en það hefur bein áhrif á líðan og lífsgæði. Hvernig virkjum við ADHD fókusinn og nýtum þau úrræði sem eru í boði.

Fundurinn verður fimmtudaginn 9. mars klukkan 19:30 í fundarherbergi íþróttamiðstöðvarinnar.

Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi

Skráðu þig á viðburðinn á Facebook og fáðu áminningu: https://fb.me/e/13rgjk3TA

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt