Aðstandendanámskeið 6-12 ára - nóvember 2023

Foreldrar

SKRÁNING HÉR Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6 til 12 ára aldri verður haldið hautið 2023 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað. 

Námskeið er haldið tvo laugardaga i senn frá kl. 10:00-15:00 dagana 4. og 11. nóvember 2023. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið verður upp á fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Skipulag og dagskrá: 

Fyrri laugardagur 4. nóvember 2023

10:00 – 11:15         Hvað er ADHD?

11:15 -   11:30         Hlé

11:30 – 13:00       Lyfjameðferð við ADHD?                 

13:00 – 13:30        Matarhlé

13:30 – 15:00       ADHD og nám


Seinni laugardagur 11. nóvember 2023

10:00 – 11:15          Félagsfærni barna með ADHD     

11:15  – 11:30           Hlé

11:30 - 13:00           Kvíði og líðan barna með ADHD 

13:00 – 13:30         Matarhlé

13:30 – 15:00         Samskipti innan fjölskyldna barna með ADHD

 

** ATH. uppröðun fyrirlestra og fyrirlesarar gætu breyst.

Hver fyrirlestur er í 75 mín. og reiknað með góðum tíma í fyrirspurnir og umræður. 

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

                                             Einstaklingur                      Báðir foreldrar / forráðamenn / aðstandendur

Félagsmenn                      Kr. 29.000                          Kr. 39.000
Aðrir                                   Kr. 34.000                          Kr. 44.000

SKRÁNING HÉR