Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna, þriðjudaginn 19. maí kl. 20:00. Skráning á Facebook viðburð.
Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna:
- Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári.
- Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
- Lagabreytingar.
- Kosning stjórnar.
- Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna til eins árs í senn.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
Allir fullgildir félagsmenn ADHD samtakanna á aðalfundardegi geta mætt og tekið þátt í aðalfundarstörfum. Hægt er að ganga í samtökin hér.