Skólaumhverfið og ADHD

Dagsetning Tími Staðsetning
18. mars 2025 kl. 17:00 - 20:00 Zoom

Skólaumhverfið og ADHD, fyrir annað starfsfólk skóla

Frímínútur, matsalur, færsla í og úr tímum og fataklefar eru staðir sem nemendur með ADHD eiga hvað erfiðast með og í þessum aðstæðum aukast líkur á árekstrum. Skilningur og rétt viðbrögð starfsfólks skóla geta dregið úr slíkum atvikum og bætt líðan. Á þessu námskeiði er farið yfir birtingamyndir ADHD, hvernig hægt er með gagnreyndum aðferðum að draga úr óæskilegum uppákomum og styrkja sjálfsmynd nemenda með því að byggja á styrkleikum. Samskipti og samvinna þeirra sem koma að nemendum með ADHD geta skipt sköpum ásamt því að samræma viðbrögð. Þess má geta að það sem virkar fyrir nemendur með ADHD virkar í flestum tilfellum fyrir alla. hvetjum því alla sem starfa innan skólakerfisins að taka þátt.

Fyrirlesari: Jóna Kristín Gunnarsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri fræðslumála hjá ADHD samtökunum