Námskeiðið Taktu stjórnina! sem verður haldið á þriðjudögum 5., 12., 19. og 26. mars 2024 (sjá nánar töflu hér fyrir neðan) Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkustund í senn frá kl. 17:00 - 19:30 alla dagana.
- Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!
Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
- Skilningur á ADHD og ólík einkenni
- Algengir fylgikvillar
- Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
- Markmiðasetning
- Félagsleg samskipti almennt
- Vinna og nám
- Fjármálastjórn
- Heimilið
- Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
- Heilbrigt líferni
Markmið námskeiðsins:
- Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.
Námskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.
Skipulag:
- tími Þriðjudagur 5. mars kl. 17:00 - 19:30
- tími Þriðjudagur 12. mars kl. 17:00 - 19:30
- tími Þriðjudagur 19. mars kl. 17:00 - 19:30
- tími Þriðjudagur 26. mars kl. 17:00 - 19:30
Námskeiðsverð:
39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna
44.000 kr fyrir aðra
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is