ADHD og jólin.
Fræðslufundur þar sem fjallað verður um undirbúning jóla og ADHD.
Dr Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur fjallar um, hvernig ýmislegt í jólaundirbúningnum, spenningnum sem fylgir jólunum og breyttri rútínu fjölskyldunnar í jólafríinu, getur valdið streitu og erfiðleikum hjá börnum og fólki með ADHD og gefur góð ráð um hvernig hægt er að bregðast við.
Jólin eru enda og eiga að vera, hátíð gleðinnar hjá fólki með ADHD ekki síður en öðrum.
Fundurinn er haldinn í Þekkingarsetrinu og er öllum opinn.
Facebook viðburður