Akureyri - ADHD og styrkleikar í skóla

ADHD og styrkleikar í skóla

Kennsla barna er frábært, krefjandi og fjölbreytt starf. Ólíkar þarfir innan bekkjarins og oft færri úrræði en við vildum hafa í boði.
En hvað ef við beinum fókusnum á styrkleika barnanna? Finnum út hvernig við getum mætt þeim, virkjað sköpunargáfur og fundið uppbrot svo þau springi ekki þegar úthaldið er búið.
Það getur krafist smá vinnu í upphafi en skilar sér svo margfalt til baka. Hvað er hægt að gera innan bekkjarins þannig að allir fái notið sín eins og hægt er?
Kolbrún Ada Gunnarsdóttir deildarstjóri í Borgarhólsskóla á Húsavík fer yfir hvað hún í sínu starfi hefur gert til að mæta nemendum með Adhd og öðrum nemendum.
Bæði í starfi sem kennari og eins sem deildarstjóri þegar kennarar kalla til aðstoðar vegna nemenda.
Fundurinn er í Hlíðarskóla á Akureyri og hvetjum við allt starfsfólk skóla sem og alla aðra til að fjölmenna.
Öll velkomin.

 

Facebook viðburður