Að mæta börnum með ADHD og einhverfu
Inga Aronsdóttir móðir, leikskólakennari og sérkennsluráðgjafi deilir reynslu sinni um gagnlegar leiðir til að mæta börnum sem greind hafa verið með ADHD og einhverfu í skóla og heima. Einnig verður farið yfir það hvernig hægt er að hlúa að sjálfsmynd barnanna og vellíðan þannig að þau komi sem sterkust út í lífið eftir að skólagöngu lýkur.
Í lokin gefst þátttakendum færi á að koma með spurningar og vonumst við eftir líflegum umræðum.
Öll eru velkomin að mæta á staðinn en streymi er eingöngu aðgengilegt
félagsfólki (ADHD í beinni á facebook).
Facebook viðburður